Fréttir
Vordagar, útskrift og skólaslit
Nú er síðasta skólavika skólaársins framundan. Vordagar verða 2.-4. júní þar sem hefðbundin kennsla er látin víkja fyrir útiveru þar sem ýmislegt skemmtilegt er gert. Þessir daga fara nemendur fyrr heim á daginn en frístund verður opin eins og venjulega. Sjá […]
Vorferð 3. LS í Húsdýragarðinn
Vorferð 3. bekkjar var að venju í Húsdýragarðinn. Þar fengu nemendur og kennarar fyrirtaks fræðslu um íslensk húsdýr ásamt því að fá að skoða, klappa og gefa húsdýrunum að borða. Ferðin tókst í alla staði mjög vel, veður var milt og […]
Lindaskóli sigraði í Skólahreysti
Lið Lindaskóla stóð sig frábærlega vel í undankeppni í Skólahreysti í dag. Auk Lindaskóla kepptu í sama riðli Árbæjarskóli, Dalskóli, Fellaskóli, Foldaskóli, Hagaskóli, Langholtsskóli, Laugalækjarskóli, Réttarholtsskóli og Rimaskóli. Lindaskóli sigraði með 57 stigum og fékk sæti í úrslitunum sem verða næstkomandi […]
Grillveisla í frístundinni
Í gær var haldin hin árlega grillveisla í frístundinni sem iðulega er haldin þegar starfsemin fer að líða undir lok eftir veturinn. Starfsmenn frístundarinnar grilluðu á skólalóðinni og svo var farið í leiki. 😊 Börnin fengu pylsur og safa og allir […]
Birkir í 2. HS Lindaskólameistari í skák
Meistaramót Lindaskóla var haldið þriðjudaginn 19. maí í matsal skólans. Alls tóku 25 nemendur þátt í mótinu sem var æsi spennandi. Birkir Hallmundarson í 2. bekk sigraði örugglega með 8 sigra af 8 mögulegum. Í öðru sæti kom Engilbert Viðar Eyþórsson […]
Sveitaferð – 2. bekkur
Mánudaginn 18. maí fór nemendur í 2. bekk í sveitaferð á Hraðastaði í Mosfellsdal til að kynnast sveitalífinu. Þar ríkti sannarlega mikil gleði og fengu nemendur að klappa dýrunum. Þar voru kindur með nýfædd lömb, kanínur, geitur og kiðlingar. Einnig voru […]