Litla upplestrarkeppnin

Lindaskóli tekur þátt í Litlu upplestrarkeppninni sem hefst á degi íslenskrar tungu 16. nóvember og lýkur í apríl með hátíð þar sem nemendur lesa fyrir gesti. Litla upplestrarkeppnin er fyrir nemendur í 4. bekk. Litla upplestrarkeppnin er liður í læsishvetjandi verkefnum.