Útivistartími barna og unglinga

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00.

Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.

Sjá nánar á heimasíðu lögreglunnar https://www.logreglan.is/utivistarreglurnar/