Jemen

Jemen er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístundadeildar Kópavogsbæjar. Félagsmiðstöðin er staðsett inni í Lindaskóla. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á markvisst frístunda- og forvarnarstarf undir handleiðslu fagfólks. Lögð er áhersla á lýðræði, virka þátttöku, uppbyggingu sjálfsmyndar, ánægju og gleði. Í félagsmiðstöðinni er bæði boðið uppá opið starf og hópastarf, sem miða bæði að því að stuðla að auknum félagsþroska, samskiptahæfni, þátttöku og ábyrgð.

Opnunartími Jemen:

Mánudagur 17:00-18:30 / 19:30-22:00

Miðvikudagur 17:00-18:30 / 19:30-22:00

Annar hver föstudagur 19:30-22:45

Auk þess er opið í frímínútum, hádegishléi og á daginn og er það skipulagt eftir viðverutíma forstöðukonu og starfsfólks. Yfir sumartímann er miðstigsstarf, hópastarf, dag- og hádegisopnanir ásamt kvöldopnunum og er það auglýst sérstaklega.

Upplýsingar um dagskrá:

Félagsmiðstöðin heldur úti Instagram síðu sem við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til þess að skoða. Þar koma inn allar auglýsingar um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar ásamt dagskrá fyrir hvern mánuð fyrir sig: @jemenkop. Að auki er notast við Sportabler en þar er mánaðarlegri dagskrá hlaðið inn og sendar tilkynningar og skilaboð ef einhver breyting verður á dagskrá. Alltaf hægt að senda okkur tölvupóst á arnorgauti@kopavogur.is.

Starfsfólk Jemen:

Arnór Gauti Jónsson –  Forstöðumaður

Netfang: arnorgauti@kopavogur.is

Eva Rós Eyjólfsdóttir – Aðstoðarforstöðumaður

Netfang: evae@kopavogur.is

Hildur Jóhanna Kristjánsdóttir – Frístundaleiðbeinandi

Netfang: hildur.johanna@kopavogur.is

Darri Egilsson – Frístundaleiðbeinandi (Afleysing)

Brynja Bjarnadóttir – Frístundaleiðbeinandi (Afleysing)

Ísak Parsi – Frístundaleiðbeinandi