Fréttir
Lindaskólahlaupið – safnað fyrir ADHD samtökin
Nemendur söfnuðu 200.000 fyrir ADHD samtökin í árlegu áheitahlaupi skólans, Lindaskólahlaupinu. Styrkurinn var afhentur samtökunum á skólaslitunum að viðstöddu fjölmenni, nemendum, foreldrum og starfsfólki Lindaskóla. Á myndinni sést þegar María Guðnadóttir afhendir Hrannari B. Arnarssyni afrakstur áheitahlaupsins. Framkvæmdastjóri ADHD samtakanna veitti […]
Vordagar
Síðustu dagana á skólaárinu var mikið um að vera. Allir bekkir fóru í ferðir til að auðga andann, setja lokapunkt við námsefni vetrarins og létta lundina svona rétt í lokin. Nemendur í 1. bekk fóru í Guðmundarlund. 2. bekkur skellti sér […]
Skólaslit og vorhátíð foreldrafélagsins
Nemendur í 1. – 9. bekkjum mæta í stofur til umsjónarkennara kl 12:10. Skólaslitin verða í íþróttasal skólans föstudaginn 3. júní kl 12:30. Í beinu framhaldi heldur foreldrafélagið langþráða vorhátíð. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir á skólaslitin. Vorhátíðin er á […]
Íslenskt landslag, litablöndun í 7. bekk
Innlit í myndmennt hjá 7. ÁGK og Sigríði mynmenntakennara. Nemendur kynnast aðferðum impressjónistanna. Að skapa stemningu með litum. Í upphafi töluðum við um upplifun okkar af íslensku landslagi. Skoðuðum verk eftir íslenska myndlistamenn. Og einnig ljósmyndir af íslensku landslagi. Nemendur völdu […]
Gönguferð í Reykjadal
Þriðjudaginn 10. maí lögðu ferskir nemendur úr 10. bekk af stað í mjög skemmtilega göngu inn í Reykjadal við Hveragerði. Þetta er hluti af íþróttaeinkunn þeirra Gangan tók um 1 klukkutíma upp fjallið í átt að heitu laugunum ca. 4 km. […]
Stúlkurnar í 7. bekk sigruðu Skólamót Kópavogs í fótbolta
Föstudaginn 13. maí fór fram Skólamót 7. bekkjar í grunnskólum Kópavogs. Mótið fór fram í Kórnum í Kópavogi. Mótið hófst kl 9:00 og endaði með úrslitaleikjum kl 12:00. Nemendur Lindaskóla voru til fyrirmyndar á mótinu, allur árgangurinn gerði sér glaðan dag […]