Appelsínugul viðvörun!

Appelsínugul viðvörun á morgun þriðjudag, eins og staðan er núna er hún á þeim tíma sem nemendur eru á leið í skóla, eða í fyrramálið frá 06:00 – 08:00, sjá hér: https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk

Við biðjum foreldra og forráðamenn að fylgjast vel með veðri og veðurspám til að meta hvort þurfi að fylgja börnum í skólann eða hafa þau heima þar til veðrinu slotar.

Hér eru leiðbeiningar varðandi röskun á skólastarfi fyrir forráðamenn nemenda: https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi

Posted in Fréttaflokkur.