Fréttir

Upplestur fyrir nemendur í 1.-4. bekk
Mánudaginn 7. október heimsótti Guðni Líndal Benediktsson rithöfundur nemendur í 1.-4. bekk. Hann las upp úr nýlegri bók sinni sem heitir Hundurinn með hattinn. Hundurinn sem heitir Spori leysir ýmsar ráðgátur í bókinni. Spori og kettlingurinn Tása lenda í lævísum refum, […]

Metfjöldi í kór Lindaskóla
Einn kór er í Lindaskóla í vetur fyrir nemendur í 3.-6. bekk. Um 60 nemendur eru skráðir í kórinn sem er alveg frábært. Margt skemmtilegt er á döfinni hjá kórnum í vetur og verður sagt frá því síðar. Stjórnandi kórsins er […]

Skákin slær í gegn
Mikill skákáhugi er í Lindaskóla. Boðið er upp á skák fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Æfingarnar eru á föstudögum fyrir 1.-4. bekk, kl. 14:10-15:00 og kl. 15:00-15:50. Á þriðjudögum eru æfingar fyrir 5.-7. bekk kl. 14:10-15:10. Skákkennari er Kristófer Gautason, formaður […]

Foreldra– og nemendaviðtöl
Framundan eru foreldra- og nemendaviðtöl í Lindaskóla. Þau eru dagana 7.-11. október. Eins og undanfarin ár verða þau eftir kennslu hjá kennurum. Í þessum viðtölum er farið yfir skólabyrjunina, hvernig námið hefur gengið, hvernig nemendum líður, hvernig samskiptin ganga o.s.frv.

Forvarnardagurinn 2019
Forvarnardagurinn 2019 var haldinn í flestum grunn- og framhaldsskólum landsins í dag miðvikudaginn 2. október. Lindaskóli hefur verið með frá upphafi og er hann haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að unglingum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla.

Göngum í skólann
Á morgun, miðvikudaginn 4. september, hefst átakið Göngum í skólann. Lindaskóli er að sjálfsögðu skráður til leiks. Í tilefni dagsins ætla umsjónarkennarar í gönguferð með nemendur. Í tengslum við göngutúrinn ræða kennarar við nemendur um verkefnið, mikilvægi hreyfingar og hvetja þau […]