Fréttir
Skipulag 27. – 30. apríl
Þá er komið að síðustu viku í samkomubanni. Við finnum að fólk er orðið óþreyjufullt um að allt verði eins og áður en við verðum að hafa í huga mikilvægi þess að fylgja eftir fyrirmælum almannavarna í einu og öllu. Skólahald […]
Sumardagurinn fyrsti – Gleðilegt sumar
Í dag er síðasti vetrardagur. Á morgun er sumardagurinn fyrsti og því frí í skólanum. Gleðilegt sumar og hafið það sem allra best. Kærar kveðjur frá starfsmönnum Lindaskóla
Netskákmót
Netskákmót hafa verið í hverri viku fyrir nemendur Lindaskóla frá því að samkomubann skall á. Skákmótin eru alla þriðjudaga kl. 16:30; https://www.chess.com/club/skakklubbur-lindaskola. Frábært framtak hjá Kristóferi Gautasyni skákkennara. Auk þess hefur Kristófer verið í samstarfi við Menntasvið Kópavogsbæjar um netskákmót fyrir […]
Vísubotnasamkeppni Menntamálastofnunar veturinn 2019-2020
Vísnasamkeppni grunnskóla landsins var haldin fyrr í vetur og líkt og undanfarin ár tók Lindaskóli þátt. Fjölmargir góðir botnar bárust og var hægara sagt en gert fyrir dómnefndina að velja vinningshafa. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í vinningssæti þetta árið […]
Skipulag 20. – 24. apríl
Þá er fjórðu kennsluviku í samkomubanni lokið. Það er óhætt að segja að nemendur og kennarar hafi staðið sig ótrúlega vel í þessum óvenjulegu aðstæðum. Þeir hafa þurft að aðlaga sig að þessu stóra samfélagslega verkefni á fjölbreyttan hátt. Kennarar hafa […]
Heimilin og háskólinn – fræðsla fyrir foreldra
Nýverið hóf göngu sína funda- og fyrirlestraröð fyrir foreldra á ZOOM, í samstarfi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Heimilis og skóla. Þar munu sérfræðingar Menntavísindasviðs ásamt góðum gestum úr samfélaginu og öðrum fræðasviðum HÍ fjalla um ólíkar hliðar fjölskyldulífsins á þeim óvenjulegum […]










