Lið Lindaskóla stóð sig frábærlega vel í undankeppni í Skólahreysti í dag. Auk Lindaskóla kepptu í sama riðli Árbæjarskóli, Dalskóli, Fellaskóli, Foldaskóli, Hagaskóli, Langholtsskóli, Laugalækjarskóli, Réttarholtsskóli og Rimaskóli. Lindaskóli sigraði með 57 stigum og fékk sæti í úrslitunum sem verða næstkomandi laugardag. Bein útsending verður á RÚV frá úrslitakeppninni sem hefst kl. 19:40. Við hvetjum og styðjum okkar lið heima í stofu því keppnin verður haldin án áhorfenda.
Keppendur Lindaskóla í ár eru:
Alexander Broddi Sigvaldason upphífingar og dýfur
Ásdís María Davíðsdóttir varamaður
Lúkas Magni Magnason hraðabraut
Markús Birgisson varamaður
Sara Bjarkadóttir hraðabraut
Selma Barkadóttir armbeygjur og hreystigreip
Viktor Óli Bjarkason varamaður
Til hamingju Lindaskóli, til hamingju keppendur. Áfram Lindaskóli.