Pangea stærðfræðikeppnin 2026

Pangea er stærðfræðikeppni fyrir nemendur í 8. og 9.bekk sem haldin er í yfir 20 löndum i Evrópu.

Keppnin er stærsta stærðfræðikeppni fyrir grunnskóla á Íslandi og í ár tóku yfir 4.500 keppendur þátt hér á landi frá 62 skólum víðsvegar um landið. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga ungs fólks á stærðfræði og byggir keppnin m.a. á þrautum og rökfræði.

Haldnar eru tvær undankeppnir áður en sjálf úrslitakeppnin fer fram og að þessu sinni voru þrír nemendur í 9.SÁ sem komust alla leið í úrslitakeppnina sem haldin var síðastliðinn laugardag þann 18.apríl. Það voru þau Arnar Freyr Orrason, Hulda Vigdís Vigfúsdóttir og Sigurður Páll Guðnýjarson. Þau stóðu sig með stakri prýði og endaði Sigurður Páll í 4.sæti og Arnar Freyr í 7.sæti. Við hér í Lindaskóla erum mjög stolt af okkar flotta fólki og óskum þeim innilega til hamingju.

 

Posted in Fréttaflokkur.