Íslandsmót grunnskólasveita í 8.-10.bekk fór fram í Rimaskóla þann 19.apríl síðastliðinn. Að þessu sinni voru 17 sveitir skráðar til leiks og tefldar voru 7 umferðir.
Fyrirfram var sveit Lindaskóla í öðrum klassa og sýndi í mótinu að það var innistæða fyrir því. Lindaskóli vann allar sínar viðureignir og endaði vel yfir næstu sveitum með 23 vinninga samtals. Hvaleyrarskóli átti einnig gott mót og endaði í 2.sæti með 181/2 vinning. Rimaskóli A-sveit endaði svo í 3.sæti með 17 vinninga.
Úrslitin voru því á þessa leið
Lindaskóli 23
Hvaleyrarskóli 18½
Rimaskóli A-sveit 17
Við óskum strákunum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri Birkir Ísak liðstjóri, Sigurður Páll Guðnýjarson, Örvar Hólm Brynjarsson, Birkir Hallmundarson og Nökkvi Hólm Brynjarsson. Á myndina vantar Engilbert Viðar Eyþórsson.
