Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2020 – 2021

Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2020 – 2021. Innritun 6 ára barna (fædd 2014) fer nú alfarið fram í gegnum þjónustugátt á vef bæjarins https://thjonustugatt.kopavogur.is.  Opnað verður fyrir skráningu 1. mars 2020 og stendur hún til 8. mars.

Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum.

Haustið 2020 munu skólar hefjast með skólasetningardegi þriðjudaginn 25. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.

Sérstök athygli er vakin á því að um­sóknar­frestur um heimild til að stunda nám í einka­skólum eða grunn­skólum annarra sveit­ar­f­é­l­aga er til 1. apríl og skal sækja um á þjónustugátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.

Posted in Fréttaflokkur.