⚽️ Glæsilegur sigur hjá 7. bekk 🏆
Hið árlega fótboltamót 7. bekkjar í Kópavogi fór fram þann 9. apríl síðastliðinn í Fífunni. Þar tókust á lið úr öllum grunnskólum bæjarins — og stelpurnar okkar úr Lindaskóla stóðu sig meiriháttar vel 💪💙
Þær spiluðu af miklum krafti, samheldni og með jákvæðu hugarfari og lögðu að endingu öll önnur lið að velli. Glæsilegur sigur í mótinu og bikarinn fór heim í Lindaskóla! 🥇🏆
Á myndunum má sjá sigurliðið stoltar stelpur með bikarinn.
Til hamingju, frábæra lið Lindaskóla! 💫 Við erum ótrúlega stolt af ykkur! 🙌💙⚽️