📚 Lindaskóli á Uppskeruhátíð #kópmennt 🎉
Í gær fór fram glæsileg Uppskeruhátíð menntabúða #kópmennt í Vatnsendaskóla í Kópavogi. Þar komu saman um 200 kennarar og nemendur 👩🏫👨🎓 úr öllum grunnskólum bæjarins til að sýna afrakstur skapandi og skemmtilegra verkefna. Á hátíðinni kynntu nemendur fjölbreytt og spennandi verkefni sem þau hafa unnið að í vetur. 💡✨
Nemendur úr Lindaskóla tóku virkan þátt og stóðu sig með prýði! 🙌
🎲 Nemendur á unglingastigi kynntu valáfanga sem kallast Dungeons and Dragons, undir leiðsögn Hönnu Clöru Minshull. Þar skapa nemendur sínar eigin hetjur 🧙♂️🗡️, lenda í ævintýrum og leysa þrautir í sameiningu. Leikurinn eflir ímyndunarafl, samvinnu og frásagnarfærni og hefur vakið mikla lukku meðal þátttakenda. Á hátíðinni fengu gestir að sjá kort, persónulýsingar og hugmyndir nemenda sem lýstu glöggt þeirri miklu vinnu og sköpun sem í valáfanganum býr.
🖥️ Nemendur í 7. bekk undir handleiðslu Sigrúnar Gróu Jónsdóttur kennara kynntu fjölbreytt verkefni sem þeir hafa unnið að í hönnunarforritinu Canva. Þar kynntu nemendur , plaköt og önnur sjónræn verkefni sem sýndu bæði tæknilega færni og hugmyndaríka framsetningu. 🎨📊
Við í Lindaskóla erum stolt af framlagi okkar nemenda og þökkum þeim og kennurum þeirra kærlega fyrir frábæra þátttöku! 💙👏