Sýningin Lita verur á Bókasafni Lindaskóla

Sýningin Lita verur

Á sýningunni Lita verur má sjá fjölbreytt og litrík listaverk nemenda í 3.–7. bekk Lindaskóla. Nemendur fengu fræðslu um litafræði, þar sem þeir lærðu m.a. um heita og kalda liti. Í kjölfarið sköpuðu þeir klippimyndaverur úr litríkum pappír og tengdu þær við eigin áhugasvið – til dæmis úr bókmenntum, kvikmyndum eða eigin ímyndunarafli.

Útkoman er skemmtileg sýning þar sem m.a. má sjá álfa, tröll og geimverur. Verkin eru unnin af þeim nemendum sem eru í myndmennt á vorönn,  því eru ekki allir nemendur árganganna með verk á sýningunni.

Við hvetjum foreldra til að koma með börnum sínum og skoða sýninguna en Bókasafn Kópavogs, Lindasafn er opið frá kl. 13-18 alla virka daga og á laugardögum frá kl. 11-15.

Posted in Fréttaflokkur.