Spurningakeppnin Uglan

Í vetur stóð bókasafn skólans  fyrir lestrarátaki sem endaði núna í vor með spurningakeppninni Uglunni.  Keppnin er með svipuðu sniði og Útsvar og Gettu betur og eru þátttakendur 5. , 6. og 7. bekkur.  6.SS og 7.DH kepptu til úrslita og stóðu bæði liðin sig frábærlega. Það var síðan 6.SS sem stóð uppi sem sigurvegari Uglunnar skólaárið 2022-2023 en liðið skipuðu Benedikt Nói, Bríet Rós og Sigurður Páll. Sigurliðið hlaut að launum viðurkenningarskjal og farandgripinn Ugluna. Til hamingju með sigurinn lið 6.SS.

Solveig Gísladóttir

Posted in Fréttaflokkur.