Auglýst eftir tilnefningum

Kópurinn, viðurkenningar menntaráðs Kópavogs.

Menntaráð Kópavogs auglýsir hér með eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í grunnskólum Kópavogs.

Viðurkenningar verða veittar fyrir 3 – 5 verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun. Með því er átt við nýjungar í skóla- og frístundastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara. Auk þess er æskilegt að verkefnið sýni:

  • að það hefur verið unnið af frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð
  • að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara
  • að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni

Skannið QR kóðan eða notið linkinn hér til þess að fá upp eyðublað til tilnefninga. Skilafrestur er til 23. apríl 2023.

Posted in Fréttaflokkur.