Lindaskólahlaupið – safnað fyrir ADHD samtökin

Nemendur söfnuðu 200.000 fyrir ADHD samtökin í árlegu áheitahlaupi skólans, Lindaskólahlaupinu. Styrkurinn var afhentur samtökunum á skólaslitunum að viðstöddu fjölmenni, nemendum, foreldrum og starfsfólki Lindaskóla. Á myndinni sést þegar María Guðnadóttir afhendir Hrannari B. Arnarssyni afrakstur áheitahlaupsins.
Framkvæmdastjóri ADHD samtakanna veitti styrknum móttöku og þakkaði kærlega fyrir þann hlýhug og velvild sem í framtakinu fólst. Mikilvægast af öllu væri að muna að við séum öll mismunandi, hver og einn hafi sina styrkleika og áskoranir og að saman getum við laðað fram það besta hvert í öðru ef við tökum tillit til eiginleika hvers og eins.
Posted in Fréttaflokkur.