Skólaslit Lindaskóla

Skólaslit Lindaskóla voru haldin miðvikudaginn 5. júní sl.  Nemendur í 1. – 9. bekk mættu um  hádegisbil inn í bekkjarstofur og kvöddu kennarana sína áður en þeir héldu niður í íþróttasal skólans þar sem sjálf slitin áttu sér stað.  Dagskráin hófst á því að Guðrún G. Halldórsdóttir, skólastjóri, flutti ávarp til nemenda. María Málfríður Guðnadóttir, íþróttakennari tók síðan við og fór yfir glæstan árangur nemenda í íþróttum í vetur, s.s. í Skólahreysti, fótboltamóti 7. bekkjar og hinum ýmsu hlaupakeppnum sem nemendur Lindaskóla hafa náð stórkostlegum árangri í fyrir hönd skólans bæði á bæjarvísu og landsvísu.  Einnig afhenti María fulltrúa Langveikra barna peningagjöf sem safnaðist í áheitahlaupi nemenda í vor.  Klara Blöndal, nemandi í 6. bekk Lindaskóla tók lagið og að lokum var skólanum slitið og vorhátíð foreldrafélagsins tók við.  Vorhátíðin tókst gríðarlega vel enda var vel að henni staðið og vorblíðan lék við nemendur, kennarar og foreldra.  Eins og hefð er fyrir hófst fjáröflun verðandi 10. bekkinga á vorhátíðinni með sölu á ýmsu góðgæti.

Posted in Fréttaflokkur.