Skólasetning Lindaskóla verður þriðjudaginn 23. ágúst sem hér segir:
8:30 2. – 4. bekkur
9:00 5. – 7. bekkur
9:30 8. – 10. bekkur
Skólasetningin hefst í sal skólans þar sem foreldrar eru velkomnir.
Eftir skólasetningu hitta nemendur umsjónarkennara. Engin kennsla er þennan dag.
Nemendur í 1. bekk ásamt foreldrum hitta bekkjarkennara á skólasetningardaginn með fyrirfram ákveðnu fundarboði.
Kennsla hefst svo miðvikudaginn 24. ágúst samkvæmt stundatöflu. Frístund hefst sama dag fyrir nemendur í 1.- 4. sem þar eru skráðir.