Skilaboð frá Almannavörnum á höfuðborgarsvæðinu: Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag, fimmtudag, og eru foreldrar/ forráðamenn beðnir að sækja börnin sín í lok skóla eða frístundastarfs.
Ekki er þörf að sækja börn fyrir ákveðinn tíma, heldur verið að hvetja til þess að börn undir 12 ára aldri gangi ekki ein heim í lok skóladags eða frístundarstarfs. Börn eru óhult í skóla og frístundastarfi þar til þau verða sótt. Hér er átt við börn yngri en 12 ára.