Skilaboð frá almannavörnum á höfuðborgarsvæðinu:
Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 15:00 í dag. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að sækja börn sín í lok frístundastarfs í dag, þriðjudag.
Ekki er þörf að sækja börn fyrir klukkan 15:00 heldur er bara verið að hvetja til þess að börn undir 12 ára aldri gangi ekki ein heim eftir klukkan 15:00.
Börn eru óhult í skóla og frístundastarfi þar til þau verða sótt.