Skólasetning – tímasetningar

Skólasetning Lindaskóla verður í matsal nemenda miðvikudaginn 23. ágúst 2023.
Nemendur mæta eins og hér segir:

8:30 – nemendur í 2.,  3. og 4. bekk

9:00 – nemendur í 5., 6. og 7. bekk

9:30 – nemendur í 8., 9. og 10. bekk

Eftir skólasetningu hitta nemendur umsjónarkennara. Engin kennsla er þennan dag.

Nemendur í 1. bekk ásamt foreldrum hitta bekkjarkennara á skólasetningardaginn með fyrirfram ákveðnu fundarboði.

Kennsla hefst svo fimmtudaginn 24. ágúst samkvæmt stundatöflu.
Frístund hefst sama dag fyrir nemendur í 1.- 4.  sem þar eru skráðir.

Síðast en ekki síst þá eru foreldrar/forráðamenn hjartanlega velkomnir á skólasetninguna.

Posted in Fréttaflokkur.