Rauð viðvörun

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, mánudag 7. febrúar.

Reglulegt skólastarf fellur niður en skólinn verður opinn með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum.

Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun mánudag sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Þó svo veður verði skaplegt á morgun og veðurviðvaranir ekki til staðar, þá mun færð spillast og er mikilvægt að fólk haldi sig heima meðan verið er að ryðja vegi og fólk fylgist vel með upplýsingum, en það er tímafrekt að ryðja húsgötur.

Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu Veðurstofunnar.

https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk

Posted in Fréttaflokkur.