Gul veðurviðvörun

Gul veðurviðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu, þriðudaginn 25. janúar frá 13:30 og fram á kvöld.

Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.

Hér eru nánari upplýsingar fyrir foreldra/forráðamenn: https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi

Posted in Fréttaflokkur.