Bækur mánaðarins september – Galdrar

Villinorn : Eldraun (Lene  Kaaberböl).

Klara er 12 ára grunnskólanemandi og villinorn.  Atburðarásin er hröð, kaflarnir stuttir og mikið af ráðgátum og ósvöruðum spurningum. Þetta er spennusaga.

Strandanornir  ( Kristín Helga Gunnarsdóttir)

Óboðinn gestur birtist óvænt í árlegri veislu Kolfríðar fyrir framliðna ættingja og vini – ófrýnileg skotta sem skelfir bæði hana og barnabörnin þrjú.  Til að kveða óværuna niður þarf fjölskyldan að fara norður á Galdrastrandir á vit fortíðarinnar og sú ferð verður ekki tíðindalaus.

Nornasaga : hrekkjavaka (Kristín Ragna  Gunnarsdóttir)

Katla opnar óvart galdragátt á hrekkjavökunni.   Ævaforn norn, smýgur í gegn, uppfull af hefndarþorsta. Tjörnin fyllist af sæskrímslum og nornin gerir Hallgrímskirkju að höll sinni – svo fátt eitt sé nefnt.

Posted in Fréttaflokkur.