Útskrift 10. bekkjar var haldin hátíðleg sama dag að kvöldi 5. júní í matsal skólans. Salurinn var í hátíðarbúningi. Nemendur og foreldrar mættu spariklæddir á útskriftina sem og kennarar skólans. Athöfnin hófst á ávarpi Guðrúnar G. Halldórsdóttur, skólastjóra og í kjölfarið kom að stóru stundinni þar sem Margrét Ármann deildarstjóri, afhenti einkunnir sem og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Skemmtiatriði komu frá tveimur útskriftarnemum, Jakobi Frey Einarssyni sem spilaði á píanó og svo Maríu Ósk Steinsdóttur sem flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Fulltrúi foreldra, Helga Pálsdóttir, flutti einnig ávarp til nemenda. Tveir kennarar Lindaskóla sem kennt hafa hópnum í gegnum tíðina, Margrét Ásgeirsdóttir sem kenndi þeim á eldra stigi og Paloma Ruiz Martines sem kenndi þeim á yngra stigi fluttu kveðjuorð til útskriftarnema. Að lokum gæddu allir sér á girnilegu hlaðborði sem foreldrar útskriftarnema sáu um. Starfsfólk Lindaskóla óskar útskriftarnemum til hamingju með daginn og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.