Útskrift 10.bekkjar
Þann 8.júní s.l. útskrifuðust 36 10.bekkingar úr Lindaskóla við hátíðlega athöfn.
Nú heldur þetta flotta unga fólk út í lífið eftir 10 ára grunnskólagöngu. Takk fyrir samveruna kæru nemendur og gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni.

Lindaskóla var svo slitið með pompi og prakt þann 9.júní.
Skólaslit Lindaskóla voru haldin að morgni 9.júní s.l. Nemendur halda nú kátir og glaðir í sumarfrí og við hlökkum til að sjá þá í ágúst.
Kveðja frá starfsfólki Lindaskóla