Lindaskólaspretturinn 2026
Árlega á vordögum er Lindaskólaspretturinn sem er áheitahlaup þar sem nemendur hlaupa ákveðinn hring í hverfinu og fá áheit frá fjölskyldum og styrkja með því góðgerðarmál. Að þessu sinni fór styrkur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og söfnuðu nemendur rúmlega 600000 kr sem voru afhentar á skólaslitum í gær.
Virkilega vel gert hjá öllum nemendum.
