Með grunnskólalögunum frá 1995 var mat á skólastarfi lögfest. Í 35. gr. grunnskólalaga frá
2008 er fjallað almennt um mat og eftirlit með gæðum grunnskólastarfs. Í 36. gr. er fjallað
um innra mat skóla og þar kemur fram að hver grunnskóli eigi að meta með kerfisbundnum
hætti árangur og gæði skólastarfs með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því
sem við á. Þar segir að grunnskólar eigi að birta opinberlega upplýsingar um innra mat sitt,
tengsl þess við skólanámskrá og áætlanir um umbætur. Mat á skólastarfi er ein leið til
umbóta í skólum.
Unnið hefur verið að sjálfsmati Lindaskóla á markvissan hátt frá árinu 2000. Upplýsingar um
sjálfsmatið er að finna á heimasíðu skólans. Mat á skólastarfi Lindaskóla fer fram með ýmsum
hætti, s.s. með ýmis konar námsmati, frammistöðumati, könnunum um líðan og samskipti og
með matstækinu Skólapúlsinum. Einnig taka nemendur þátt í ýmsum stærri utanaðkomandi
könnunum og rannsóknum s.s. frá Rannsókn og greiningu. Sjálfsmatsteymi Lindaskóla gerir
matsáætlun til nokkurra ára. Síðasta matsáætlun gilti fyrir árin 2019-2023. Þar má sjá hvaða þættir eru skoðaðir, hvenær á matstímanum, hverjir taka þátt í matinu í hvert skipti og hverjir bera ábyrgð á framkvæmdinni. Matsáætlanir eru endurskoðaðar reglulega og breytt ef ástæða þykir til.
Námsmat í Lindaskóla er fjölbreytt. Þar getur verið um að ræða verkefnavinnu, lesskimanir,
símat í ýmsum námsgreinum og próf. Samræmd könnunarpróf frá Menntamálastofnun hafa verið lögð fyrir á haustin í íslensku og stærðfræði fyrir nemendur í 4. og 7. bekk. Samræmd könnunarpróf í 9. bekk hafa verið lögð fyrir að vori. Nemendur í 9. bekk hafa tekið próf í íslensku, stærðfræði og ensku. Menntamálastofnun hefur ekki lagt fyrir samræmd könnunarpróf síðan 2022.
Námsmat hjálpar kennurum að vinna með nemendur, sjá hvar styrkleikar þeirra eru og
veikleikar, hvar þarf að efla áherslur í kennslu og hvert skal stefna.
Í foreldra- og nemendaviðtölum á haustin er farið yfir stöðu nemenda og líðan. Ekki er
hefðbundið námsmat fyrir viðtölin. Þeir kennarar sem koma að viðkomandi bekk gera umsagnir um nemendur sem umsjónarkennari fer yfir og getur rætt um á foreldrafundum.
Á hverju hausti skipuleggur námsráðgjafi kannanir um líðan og samskipti sem
umsjónarkennarar leggja fyrir. Þar er hægt að sjá stöðu þessara mála í hverjum bekk. Niðurstöðurnar eru síðan nýttar í vinnu með nemendahópinn til að efla hann og styrkja.
Skólapúlsinn er matstæki þar sem spurningar eru lagðar fyrir nemendur í 6. – 10. bekk,
foreldra og starfsmenn. Skólapúlsinn veitir skólastjórnendum og skólaskrifstofum áreiðanleg, langtímamiðuð, samanburðarhæf og aðgengileg gögn um mikilvæga þætti í skólastarfinu.
Þættirnir tengjast virkni nemenda og líðan þeirra í skólanum og um skóla- og bekkjaranda.
Niðurstöður um stöðu nemenda eru bornar saman við niðurstöður fyrri mælinga í skólanum og við landsmeðaltal sem gefur skýrar vísbendingar um þróun mála í skólanum og stöðu nemenda miðað við nemendur í öðrum skólum í landinu. Lindaskóli gerir nemendakönnun á hverju skólaári, foreldrakönnun og starfsmannakönnun annað hvert ár.
Skólapúlsinn er notaður til að bæta innra starf skólans. Skólapúlsinn er sjálfvirkt kannanakerfi sem tekur bæði til söfnunar og úrvinnslu gagna. Val á spurningakvörðum tekur mið af íslenskum aðstæðum, þar er byggt á
nýjum upplýsingum sem fengist hafa með PISA rannsóknunum á Íslandi. Yfir tíma safnast
mikið magn dýrmætra upplýsinga sem rannsakendur á sviði menntamála geta nýtt. Slíkar
niðurstöður draga fram sérkenni skólans og geta upplýst á hvaða sviðum skólinn þarf að
beita sér til að bæta skólastarfið og auka bæði árangur og vellíðan nemenda sinna.
Á heimasíðu Lindaskóla má finna ýmsar skýrslur um innra mat Lindaskóla.