Miðvikudaginn 26. febrúar er öskudagurinn og þá ætlum við í Lindaskóla að bregða á leik í tilefni dagsins. Við hvetjum alla nemendur til að koma í grímubúningum og það verður spennandi að sjá hvaða persónur eða furðuverur mæta í skólann þennan dag. Ef vopn fylgja búningum eru nemendur beðnir um að geyma þau heima. Stefnt er á skíðaferð hjá nemendum í 8. -10. bekk. Ef ekki viðrar til þess verður hefðbundinn skóladagur hjá þeim.
Dagskrá og skipulag hjá nemendum 1. – 7. bekkjar: Mæting á milli kl. 8:20-8:50. Skólinn opnar á hefðbundnum tíma en nemendum er velkomið að mæta aðeins seinna til að klæða sig upp og mála. Allir þurfa að vera komnir kl. 8:50 í sína kennslustofu. Skóladegi lýkur hjá nemendum að lokinni dagskrá og matartíma um kl. 12:10. Frístund verður opin fyrir þá sem þar eru skráðir og tekið verður á móti þeim strax að loknum matartíma.
Í stað hefðbundinnar stundatöflu hjá 1. – 7. bekk verður boðið upp á hinar ýmsu stöðvar sem nemendur geta valið eftir áhuga. Þær eru:
- Draugahús
- Draugasaga
- Keppnisþrautir
- Öskupokagerð
- Vinabönd
- Ljósmyndastöð
- Lita, klippa, popp
- Andlitsmálun
- Bíóstöð
- Bingóstöð
- Limbó
- Borðtennis og fótboltaspil
Einnig verður spákona á svæðinu. Þegar stöðvavinnu lýkur verður öskudagsball í íþróttasal. Hér má sjá skipulag dagsins.