Foreldra- og nemendaviðtöl eru í Lindaskóla 10. – 14. febrúar nk. Viðtölin eru eftir kennslu kennara eins og undanfarin ár. Umsjónarkennarar munu opna fyrir skráningu í viðtöl föstudaginn 31. janúar inni á mentor.is. Lokað verður fyrir skráningu viðtala miðvikudaginn 5. febrúar hjá 1. – 7. bekk en áfram verður opið fyrir skráningu fyrir foreldra barna í 8. og 9. bekk. Foreldraviðtölin í 10. bekk verða með öðru sniði og verða foreldrar boðaðir sérstaklega í þau viðtöl þar sem umsjónarkennari og námsráðgjafi verða saman með þau viðtöl.
Í viðtölunum er farið yfir almenna námsframvindu sem og líðan nemandans í skólanum. Foreldrar / forráðamenn eru hvattir til að kynna sér námsmatið hjá sínu barni inni á mentor.is. Vitnisburðarblað verður ekki afhent í viðtölunum þar sem námsmatið skv. Aðalnámskrá grunnskóla er orðið með öðrum hætti og er í formi símats og birtast litir við ákveðin hæfniviðmið inni á mentor ef nemandinn hefur verið metinn út frá prófi eða verkefnaskilum.
Til útskýringar eru litirnir sem sýna/ lýsa hæfni nemandans:
Litirnir eru:
Blár = Framúrskarandi hæfni
Grænn = Hæfni náð
Fjólublár = Á góðri leið
Gulur = Þarfnast þjálfunar
Rauður = Hæfni ekki náð