Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í stefnu Kópavogsbæjar. Kópavogur verður fyrsta sveitarfélag á Íslandi til þess að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með formlegum hætti.
Hér eru myndir frá kaffihúsafundi í Lindaskóla um innleiðingu heimsmarkmiðanna…
Stefna Kópavogsbæjar samanstendur af hlutverki, framtíðarsýn, gildum og yfirmarkmiðum sem eru fengin úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Hlutverk Kópavogsbæjar er að tryggja lífsgæði íbúanna með góðri og fjölbreyttri þjónustu. Grunnreglur bæjarfélagsins eru skýrar og miða að því að allir hafi tækifæri til áhrifa. Kópavogsbær leggur áherslu á gott mannlíf, skilvirkan og ábyrgan rekstur ásamt öflugu atvinnulífi.
Bæjarstjórn hefur sett 36 yfirmarkmið fyrir starfsemi sína sem eru hluti af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Heimsmarkmið 1 - Engin fátækt
Útrýma fátækt í allri sinni mynd alls staðar
Heimsmarkmið 3 - Heilsa og vellíðan
Stuðla að heilbrigðu lífi og vellíðan fyrir alla frá vöggu til grafar
Heimsmarkmið 4 - Menntun fyrir alla
Tryggja öllum jafnan aðgang að góðri menntun og tækifæri til náms alla ævi
Heimsmarkmið 5 - Jafnrétti kynjanna
Jafnrétti kynjanna verði tryggt og staða allra kvenna og stúlkna styrkt
Heimsmarkmið 6 - Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
Tryggja aðgengi allra að hreinu vatni og sjálfbæra nýtingu þess svo og hreinlætisaðstöðu
Heimsmarkmið 8 - Góð atvinna og hagvöxtur
Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla
Heimsmarkmið 9 - Nýsköpun og uppbygging
Byggja upp trausta innviði, stuðla að sjálfbærri iðnvæðingu og hlúa að nýsköpun
Heimsmarkmið 10 - Aukinn jöfnuður
Draga úr ójöfnuði í heiminum
Heimsmarkmið 11 - Sjálfbærar borgir og samfélög
Gera borgir og íbúðarsvæði örugg, sjálfbær og öllum aðgengileg
Heimsmarkmið 12 - Ábyrg neysla og framreiðsla
Tryggja sjálfbær neyslu- og framleiðslumynstur
Heimsmarkmið 13 - Aðgerðir í loftslagsmálum
Grípa til bráðra aðgerða gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra
Heimsmarkmið 14 - Líf í vatni
Vernda og nýta hafið og auðlindir þess á sjálfbæran hátt
Heimsmarkmið 15 - Líf á landi
Vernda og endurheimta vistkerfi á landi og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra, vinna að sjálfbærri stjórn skóga, berjast gegn eyðimerkurmyndun, stöðva jarðvegseyðingu, endurheimta landgæði og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni
Heimsmarkmið 16 - Friður og réttlæti
Stuðla að friðsælum og sjálfbærum samfélögum fyrir alla jarðarbúa, tryggja öllum jafnan aðgang að réttarkerfi og byggja upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir á öllum sviðum
Heimsmarkmið 17 - Samvinna um markmið
Blása lífi í alþjóðlegt samstarf um sjálfbæra þróun og grípa til aðgerða
Við val á yfirmarkmiðum hjá Kópavogsbæ var litið til þriggja þátta. Í fyrsta lagi forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands, í öðru lagi afstöðu Heimssambands sveitarfélaga til þess hvaða undirmarkmið falla að verkefnum sveitarfélaga og loks verkefna sem Kópavogsbær hefur skuldbundið til að vinna að svo sem innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Með þessari afmörkun eru forgangsmarkmið bæjarstjórnar Kópavogs, og þar með yfirmarkmið í heildarstefnu sveitarfélagsins, 36 talsins.
Miðvikudaginn 20. nóvember fór Lindaskóli af stað í þá vinnu að kortleggja heimsmarkmiðin innan veggja skólans. Þeirri vinnu stýrðu aðilar innan skólans sem sitja í heimsmarkmiðanefnd og fengu til liðs við sig Maríu Kristínu Gylfadóttur verkefnastjóra heimsmarkmiða menntasviðs. Sett var upp svokallað heimskaffi (e. World Café) og öllu starfsfólki skólans skipt niður á umræðuborð, foreldrar voru fengnir til liðs við vinnuna sem og nemendur. Eitt heimsmarkmið var á hverju borði fyrir sig og ræddu aðilar innan hópsins um markmiðin og settu niður verkefni sem skólinn vinnur að í hverju markmiði fyrir sig. Hópmeðlimir fóru síðan á milli borða og ræddu þau markmið sem hver umræðustjóri kynnti hverju sinni. Þessari vinnu er hvergi nærri lokið því í framhaldi munu öll heimsmarkmið sem unnið var með og þau verkefni sem skólinn er að vinna að í hverju markmiði fyrir sig verða sýnileg í skólanum og í kjölfarið verða hugmyndirnar sendar upp á menntasvið. Í samvinnu við menntasvið mun Lindaskóli síðan halda áfram að vinna að innleiðingu heimsmarkmiðanna. Starfsfólk Lindaskóla vill þakka þeim foreldrum og nemendum sem gáfu sér tíma til að koma að þessari vinnu með skólanum.