Skólasetning Lindaskóla 2025

Kæru foreldrar og nemendur Lindaskóla

Nú styttist í að skólastarf hefjist aftur að loknu sumarfríi. 

Skólasetning verður mánudaginn 25.ágúst n.k.

Tímasetningar eru eftirfarandi:

2.-4.bekkur        Kl. 8:30-9:00

5.-7.bekkur        Kl 9:00-9:30

8.-10.bekkur     Kl 9:30-10:00

Nemendur og forráðamenn  verðandi  1.bekkjar fá fundarboð frá umsjónarkennurum.

Skólastarf hefst svo samkvæmt stundatöflu þann 26.ágúst.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja starfsfólk Lindaskóla

Posted in Fréttaflokkur.