Kurlið – Suður-Ameríka – samvinna og sköpun

Í vetur hafa nemendur í 5.–7. bekk tekið þátt í vikulegu verkefni sem kallast Kurlið.

Markmið verkefnisins er að efla samvinnu og samskipti á milli nemenda, þvert á árganga, með leikjum og fjölbreyttum samvinnuverkefnum.

Kurlið hefur mælst einstaklega vel fyrir hjá nemendum og hefur aukið tengsl milli árganga. Undanfarnar vikur hefur þemað verið Suður-Ameríka, og nemendur unnið að fjölbreyttum verkefnum tengdum menningu, náttúru og samfélagi álfunnar.

Á stöðvum í Kurlinu fengu nemendur tækifæri til að:
🌎 fræðast um löndin og helstu kennileiti þeirra
🎭 búa til litríkar karnivalgrímur
🎶 kynnast tónlist, listum og fatamenningu
⚽ skoða þjóðaríþróttir og frægt íþróttafólk
🐒 rannsaka fjölbreytt dýralíf álfunnar
🚩 læra um fána Suður-Ameríkuríkja

Verkefnin voru bæði skapandi og fræðandi – og það sem mestu máli skiptir: þau voru unnin í góðu samstarfi árganganna þriggja. Myndirnar sem fylgja segja sitt – nemendur eiga hrós skilið fyrir frábæra þátttöku og glæsilega vinnu!

Posted in Fréttaflokkur.