Miðvikudaginn 7. maí s.l. stigu krakkar úr 3. og 4. bekk Lindaskóla, Rimaskóla og Vogaskóla á svið í Langholtskirkju, þar sem þau sungu saman með undurfögrum samhljóm. Tónleikarnir voru haldnir til styrktar Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, félagasamtökum sem vinna ötullega að því að tryggja velferð, réttindi og öryggi barna
.
Stjórnandi tónleikanna var Jóhanna Halldórsdóttir, kórstjóri, og sérstakur gestur kvöldsins var enginn annar en rapparinn Hr. Hnetusmjör, sem kom skemmtilega á óvart með kraftmiklu atriði sínu .
Takk fyrir að mæta og styðja gott málefni!