Útskrift 10.bekkjar úr Lindaskóla 2024

Útskrift 10. bekkjar var haldin hátíðleg þriðjudaginn 4. júní í matsal skólans. Salurinn var í hátíðarbúningi. Nemendur og foreldrar mættu spariklæddir á útskriftina sem og kennarar skólans. Athöfnin hófst á ávarpi Margrétar Ármann skólastjóra. Fulltrúi foreldrahópsins, Árni Sigurðsson flutti skemmtilegt ávarp til útskriftarnema og í kjölfarið kom að stóru stundinni þar sem Arnar Bjarnason deildarstjóri, afhenti einkunnir sem og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Skemmtiatriði kom frá útskriftarnemanum Friðriki Kára Magnússyni, sem spilaði á píanó glæsilegt tónverk. Tveir útskriftarnemar, þau Andrea Ölversdóttir og Ríkharður Óli Brynjarsson stigu í pontu og fluttu hressandi ávarp til hópsins. Í kjölfarið kom hluti af árbókarnefndinni upp þær Rakel Eva Kristmannsdóttir og Dagmar Edda Á Guðnadóttir á meðan restin af nefndinni útdeildu árbók til allra útskriftarnema. Unglingakennarar stigu síðan á stokk og sungu texta til útskriftarnema við lagið „Góða ferð“ en textann gerði Þóra Björg Stefánsdóttir, íslenskukennari. Að lokum gæddu allir sér á girnilegu hlaðborði sem foreldrar útskriftarnema sáu um. Starfsfólk Lindaskóla óskar útskriftarnemum til hamingju með daginn og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

 

Posted in Fréttaflokkur.