Nýir leikvellir á skólalóð Lindaskóla

Þeir eru glæsilegir nýju leikvellirnir á skólalóð Lindaskóla. Kastalann tókum við í gagnið fyrir nokkrum vikum og nú er körfuboltavöllurinn tilbúinn.  Það var mikil gleði í dag.  Nemendur Lindaskóla eiga örugglega eftir að ná langt í körfuboltanum eins og í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur. Við í skólanum erum þakklát og horfum jákvæð og björt fram á við í leik á þessum flottu völlum sem við erum svo ánægð með. Foreldrar eru hvattir til að skoða þá með börnunum sínum við tækifæri.

Posted in Fréttaflokkur.