Til að tryggja gott skólastarf setjum við í Lindaskóla okkur þessar reglur og gilda
þær á skólatíma, í ferðum og á skemmtunum á vegum skólans.
- Nám er vinna
Skóli er vinnustaður nemenda, kennara og starfsmanna og til að ná þeim
markmiðum sem stefnt er að þarf að ríkja vinnufriður. Því er virðing og
tillitssemi fyrir tíma annarra og fyrirhöfn nauðsynleg. - Stundvísi
Nemendur mæta alltaf stundvíslega skv. stundaskrá nema veikindi eða
önnur gild forföll komi í veg fyrir það. Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð
á skólasókn nemenda og skulu tilkynna forföll til skólans svo fljótt sem
auðið er. Óskir um leyfi skulu alltaf koma frá forráðamönnum.
Umsjónarkennari hefur heimild til að veita leyfi í einn dag, en ef um fleiri
daga er að ræða skal sækja um það til skólastjóra eða á heimasíðu
skólans. Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á að nemendur vinni upp það
nám sem þeir verða af í leyfum. - Framkoma
Öllum starfsmönnum Lindaskóla, nemendum, kennurum og öðrum ber
ávallt að sýna fyllstu kurteisi og vandað orðbragð í öllum samskiptum.
Nemendum ber ætíð að fara eftir fyrirmælum kennara og annarra
starfsmanna. - Umgengni
Nemendur gangi vel um skólann og eigur hans, bæði innandyra og utan.
Það gildir um námsbækur, húsbúnað og skólahúsnæðið sjálft. Nemendum
er óheimilt að hafa í fórum sínum eldfæri, hnífa eða annað það sem getur
skaðað þá sjálfa eða aðra. - Skólalóð
Nemendum er óheimilt að fara út af skólalóðinni í útivist. Nemendum ber
að temja sér friðsamlega framkomu og trufla ekki aðra í leik og starfi.
Hjólreiðar og óþarfa akstur á skólalóð er bannaður á starfstíma skólans
vegna slysahættu. Notkun línuskauta, hlaupahjóla og hjólabretta er
eingöngu leyfð á tilteknu svæði fyrir nemendur í 5. – 10. bekk. Öll
farartæki skulu geymd utandyra og eru á ábyrgð nemenda. Nemendur eru
hvattir til að nota viðeigandi öryggisbúnað. - Tæki nemenda
Öll notkun farsíma er óheimil í kennslustundum. Öll tæki í eigu nemenda
eru alfarið á ábyrgð þeirra sjálfra. - Heilbrigðar lífsvenjur
Nemendur mega ekki neyta sælgætis eða gosdrykkja á skólatíma nema
við sérstök tækifæri. Neysla tóbaks, áfengis og annarra vímuefna er með
öllu bönnuð í skólanum og þar sem nemendur koma saman eða ferðast á
vegum skólans. - Nánari reglur og ákvæði
Kennurum og starfsfólki er heimilt að setja nánari reglur á starfsstöðvum
sínum, ekki síst þar sem starfsemi krefst þess.
Viðurlög við brotum á skólareglum
- Ef um brot á skólareglum er að ræða er ferlið eftirfarandi:
a. Ef nemandi brýtur skólareglur áminnir nálægur kennari/starfsmaður
nemandann.
b. Dugi áminnig ekki ræðir umsjónarkennari við nemanda og tilkynnir
foreldrum/forráðamönnum stöðu mála og leitar jafnframt aðstoðar
þeirra.
c. Við ítrekuð brot eru foreldrar/forráðamenn boðaðir í skólann til
viðræðu við umsjónarkennara um agavanda nemandans.
d. Dugi þessi úrræði ekki kemur málið til kasta deildarstjóra. Hann
kallar nemanda á sinn fund og ræðir þau brot á skólareglum sem
nemandi tengist. Foreldrar/forráðamenn skulu upplýstir um það sem
fram fer á þessum fundi.
e. Við ítrekuð eða alvarleg brot á reglum skólans eða landslögum er
skólastjóra heimilt að vísa nemanda úr skóla á meðan unnið er að
lausn mála. Forráðamönnum og fræðsluyfirvöldum verður tilkynnt
um þá ákvörðun.
f. Ef nemandi lætur enn ekki segjast ræðir skólastjóri við nemanda og
foreldra/forráðamenn hans, um leið fer málið fyrir
nemendaverndarráð og þaðan til framkvæmdastjóra
fræðslusviðs/félagsþjónustu Kópavogs með viðeigandi úrræðum.
g. Um leið og foreldrum er tilkynnt um agabrot nemandans skal skrá
það í dagbók nemandans og allan feril málsins eftir það. - Fari nemendur ekki að reglum um fjarskipta- og farartæki geta þeir búist
við að tækjum verði komið til skólastjórnenda hvar foreldrar/forráðamenn
þurfa að vitja þeirra. - Forráðamenn nemenda eru bótaskyldir ef um skemmdir verðmæta er að
ræða. - Upplýsingar um viðurlög er varða skólasókn er að finna á heimasíðu
skólans www.lindaskoli.is.
Í Lindaskóla er andmælaréttur virtur og jafnræðis gætt í meðferð allra mála.