Skólaheilsugæsla
Heilsuvefurinn heilsuvera.is er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis.
Heilsugæsla Lindaskóla er á vegum Heilsugæslunnar Salahverfi (sími 590-3900).
Skólalæknir er Birna Björnsdóttir.
Skólahjúkrunarfræðingar eru Halla Hrund Arnardóttir og Helena Rut Jónsdóttir
Netfang hjúkrunarfræðings skólans er lindaskoli@salus.is
Viðvera skólaárið 2024-2025:
Mánudagar 8-12
Þriðjudagar 9:30-12
Miðvikudagar 8-12
Fimmtudagar 8-16
Föstudagar 8-12
Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á. Hún er framhald af ung- og smábarnavernd.
Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/ forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda, með velferð þeirra að leiðarljósi.
Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Reglubundnar skoðanir og bólusetningar
1.bekkur – Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling. Viðtal um líðan og lífsstíl.
4.bekkur – Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling. Viðtal um líðan og lífsstíl.
7.bekkur – Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling. Viðtal um líðan og lífsstíl. Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta). Bólusett gegn leghálskrabbameini, stúlkur (tvær sprautur).
9.bekkur – Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling. Viðtal um líðan og lífsstíl. Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki og stífkrampa (ein sprauta).
Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til.
Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra áður en bætt er úr því.
Fræðsla / heilbrigðishvatning / forvarnir
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6Hheilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Áherslur fræðslunnar er Hollusta – Hvíld – Hreyfing – Hreinlæti – Hamingja – Hugrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fá foreldrar/forráðamenn fréttabréf sent með tölvupósti. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig þau geta nýtt sér það í daglegu lífi.
Slys og veikindi
Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru með langvinna og/eða alvarlega sjúkdóma, s.s. sykursýki, flogaveiki, ofnæmi og blæðingarsjúkdóma. Ef óhapp/slys verður á skólatíma sinnir starfsfólk skólans fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslu eða slysadeild skulu foreldri/forráðamaður fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í aðstandendur á skólatíma. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni.
Lyfjagjafir
Samkvæmt fyrirmælum Landlæknisembættisins eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Þar kemur meðal annars fram að skólabörn skulu ekki fá önnur lyf í skólanum en þau sem hafa verið ávísuð af lækni. Í engum tilvikum getur barn borið ábyrgð á lyfjatökunni, ábyrgðin er foreldra. Börn skulu ekki hafa nein lyf undir höndum í skólanum nema í algjörum undantekningartilvikum. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið insúlíngjafir sem barnið sér sjálft alfarið um.
Foreldrar/forráðamenn þeirra barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma skulu hafa samband við skólaheilsugæslu sem skipuleggur lyfjagjafir á skólatíma.
Lús
Lúsin kíkir reglulega í heimsókn yfir skólaárið og því mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna, helst vikulega.
Að lokum
Hæfileg hreyfing, hollt mataræði og reglulegur svefn eru meginundirstöður vellíðunar barns og góðs námsárangurs. Hæfilegur svefntími barna og unglinga:
5-8 ára | 10-12 klst. |
9-12 ára | 10-11 klst. |
13-15 ára | 9-10 klst. |
Ef áföll eða veikindi verða í fjölskyldu barnsins er æskilegt að láta skólahjúkrunarfræðing vita sem og bekkjarkennara og skólastjórnendur.
Til að njóta sín í námi verður barninu að líða vel í skólanum. Skólaheilsugæslan hvetur foreldra/forráðamenn til að vera vakandi yfir líðan barna sinna og spyrja þau reglulega um líðan sína, einnig að hafa hugfast að hrós og hvatning styrkja jákvæða hegðun og auka vellíðan. Foreldrar/forráðamenn geta ávallt leitað ráðgjafar hjá skólahjúkrunarfræðingum varðandi andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.
Heilsuvefurinn www.6h.is er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lýðheilsustöðvar, Landlæknisembættisins og Barnaspítala Hringsins. Markmiðið með þessum heilsuvef er að börn, unglingar og foreldrar hafi áreiðanlegar upplýsingar frá fagfólki um heilsutengda þætti.
Með kveðju og ósk um gott samstarf, skólahjúkrunarfræðingar
Skólasálfræðingur
Skólasálfræðingur við Lindaskóla er Ása Margrét Sigurjónsdóttir. Hún hefur fasta viðveru við skólann í hverri viku og er nemendum og kennurum innan handar. Skólasálfræðingur sinnir greiningum eftir þörfum. Umsjónarkennarar geta vísað nemenendum til hans með samþykki foreldra og skal leggja beiðnina fyrir nemendaverndarráð.