Stóra upplestrarkeppnin í 7.bekk

Þann 3.mars s.l. fór fram Stóra upplestrarkeppnin í 7.bekk hér í Lindaskóla. Nemendur stóðu sig með eindæmum vel, lásu af öryggi og innlifun. Það var greinilegt að nemendur höfðu lagt mikla vinnu í æfingar undanfarnar vikur og átti dómnefndin úr vöndu að ráða.

Þó þurfti í lokin að velja þá nemendur sem munu keppa fyrir hönd skólans á lokahátíðinni sem fer fram þann 24.mars n.k. í Salnum í Kópavogi.

Fulltrúar skólans í ár eru þeir

Knútur Blöndal og Kristján Helgi Hilmarsson.

Til vara voru

Sólveig Viðarsdóttir og Alex Óli Jónsson.

Við óskum þessum nemendum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu og þökkum öllum nemendum 7.bekkjar fyrir sitt framlag.

Posted in Fréttaflokkur.