Þann 6. mars fór fram skólaþing hér í Lindaskóla þar sem lýðræðið var í fyrirrúmi. Fjórir fulltrúar voru valdir úr hverjum árgangi frá 2.-10.bekk til að sitja þingið og ræða mikilvæg málefni sem brenna á nemendum skólans.
Fyrir þingið höfðu allir árgangar fengið tækifæri til að senda inn tillögur að málum sem þeir vildu sjá í framkvæmd.
Alls bárust 18 fjölbreyttar og flottar tillögur.
Líflegar rökræður og lýðræðisleg kosning
Á skólaþinginu fengu fulltrúarnir góðan tíma til að rýna í tillögurnar, ræða þær sín á milli og færa rök fyrir því hvers vegna ákveðin mál skiptu þau máli. Það var virkilega ánægjulegt að fylgjast með því hversu vel nemendur rökræddu og hlustuðu á sjónarmið hvers annars.
Að umræðum loknum fór fram kosning um hvaða málefni ættu að fá forgang. Kosið var á skemmtilegan og myndrænan hátt, þar sem hver nemandi fékk tvo „post-it“ miða og gat þar með greitt tveimur mismunandi tillögum atkvæði sitt.
Niðurstöður skólaþingsins
Eftir spennandi kosningu og talningu miða var ljóst hvaða tvær tillögur hlutu flest atkvæði nemenda á skólaþinginu að þessu sinni. Þær voru:
-
Frí strætókort: Að ungmenni 18 ára og yngri fái frítt strætókort frá Kópavogsbæ.
-
Fleiri skólaferðir: Að farið verði í fleiri skólaferðalög í skólastarfinu.
Við erum afar stolt af þessum flottu fulltrúum og því ríka lýðræðislega starfi sem fer fram hér í Lindaskóla. Það verður spennandi að fylgja þessum baráttumálum nemenda eftir!
.