🎉 Lindaskóli í 3. sæti á Skólahreysti! 💪🏅

Nemendur  í Lindaskóla tóku þátt í Skólahreysti þann 7. maí s.l. og stóðu sig eins og sannir snillingar! 🔥 Eftir harða og spennandi keppni náðu þau að landa glæsilegu 3. sæti, sem er algjörlega frábær árangur! 💥💥

Stuðningur samnemenda þeirra var mjög mikils virði og var gaman að sjá þau fjölmenna á keppnina. 

Við erum ótrúlega stolt af þessum kraftmiklu keppendum sem sýndu einstaka seiglu, styrk og liðsheild. 👏🎯

Til hamingju, Lindaskóli! 👊🎉

Posted in Fréttaflokkur.