Nemendur í Lindaskóla tóku þátt í Skólahreysti þann 7. maí s.l. og stóðu sig eins og sannir snillingar! 🔥 Eftir harða og spennandi keppni náðu þau að landa glæsilegu 3. sæti, sem er algjörlega frábær árangur! 💥💥
Stuðningur samnemenda þeirra var mjög mikils virði og var gaman að sjá þau fjölmenna á keppnina.
Við erum ótrúlega stolt af þessum kraftmiklu keppendum sem sýndu einstaka seiglu, styrk og liðsheild. 👏🎯
Til hamingju, Lindaskóli! 👊🎉