Stúlkurnar í 7. bekk sigruðu Skólamót Kópavogs í fótbolta

Föstudaginn 13. maí fór fram Skólamót 7. bekkjar í grunnskólum Kópavogs. Mótið fór fram í Kórnum í Kópavogi. Mótið hófst kl 9:00 og endaði með úrslitaleikjum kl 12:00.

Nemendur Lindaskóla voru til fyrirmyndar á mótinu, allur árgangurinn gerði sér glaðan dag og mætti til að horfa og styðja við keppendur. Bæði lið drengja og stúlkna kepptu í undanúrslitum mótsins og stúlkurnar stóðu að lokum uppi sem sigurvegarar. Glæsilegt hjá þeim, til hamingju Lindaskóli.

 

 

Posted in Fréttaflokkur.