Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi fór fram í Salnum fimmtudaginn 24. mars. Keppnin er ávallt sett á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og markmið hennar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Fulltrúar Lindaskóla í keppninni í ár voru Erla María Ríkharðsdóttir og Vala Kristín Georgsdóttir. Á hátíðinni komu saman tveir fulltrúar frá öllum 9 grunnskólum bæjarins og lásu hluta úr sögunni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason. Því næst völdu nemendur ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og að lokum fluttu þau ljóð að eigin vali. Allir lesararnir stóðu sig með mikilli prýði og mjög erfitt var fyrir dómara að gera upp á milli þeirra. Það er því ljóst að nemendur í Kópavogi hafa staðið sig afar vel í ræktunarhluta keppninnar í skólunum áður en til lokahátíðarinnar kom.

Snædís Erla Halldórsdóttir úr Snælandsskóla sigraði keppnina, í öðru sæti var Júlía Heiðrós Halldórsdóttir úr Álfhólsskóla og í þriðja sæti var Georg Bieltvedt Jónsson úr Salaskóla.

Inn á milli upplestra fluttu nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs fallega tónlist og þátttakendur fengu viðurkenningar bók og blóm að gjöf.

Posted in Fréttaflokkur.