,,Göngum í skólann“ – Gull- og silfurskórinn

Lindaskóli tekur þátt í verkefninu Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org).

Verkefnið hófst miðvikudaginn 2. september og því lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 7. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.  Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Nemendur í 1. – 7. bekk Lindaskóla ætla að keppa um gull- og silfurskóinn síðustu tvær vikur verkefnisins, 23. september – 7. október.  Þessa daga ætla umsjónakennarar að skrá virkan ferðamáta þeirra í skólann. Nemendur í 8.-10. bekk eru einnig hvattir til að taka þátt í verkefninu og nota virkan ferðamáta svo sem að ganga eða hjóla.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt en fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 74 skólar skráðu sig til leiks árið 2019.

Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið.

Stefnt er að uppskeruhátíð í Lindaskóla þann 7. október, þegar verkefninu lýkur😊

Posted in Fréttaflokkur.