Vorskipulag Lindaskóla

Nú styttist í skólalok þetta skólaárið. Námsmat er hafið í sumum árgöngum og hefst fljótlega hjá öðrum. Framundan eru vorferðir og uppbrotsdagar. Það ríkir alltaf mikil eftirvænting hjá nemendum að fara í vorferðir og nemendur fara á ýmsa staði eftir aldri. Dæmi um viðkomustaði; Guðmundarlundur, Hraðastaðir í Mosfellsbæ, Húsdýragarðurinn, Þekkingasetrið í Sandgerði, Reykholt í Borgarfirði, Stokkseyri, Hernámssetrið í Hvalfirði og Perlan.

Fimmtudaginn 21. maí er uppstigningardagur og því frí í skólanum og föstudaginn 22. maí er skipulagsdagur og því enginn skóli. Frístund verður opin kl. 8:00-16:00 fyrir þá nemendur sem eru þar skráðir.

Vordagar verða 2.-4. júní þar sem hefðbundin kennsla er látin víkja fyrir útiveru þar sem ýmislegt skemmtilegt er gert. Þessir daga fara nemendur fyrr heim á daginn en frístund verður opin eins og venjulega.

Útskrift 10. bekkja verður fimmtudaginn 4. júní kl. 17:00.  Hver nemandi má bjóða tveimur fullorðnum með sér. Nánari upplýsingar um útskriftina verða sendar forráðamönnum.

Skólaslit Lindaskóla verða föstudaginn 5. júní. Þau verða í þrennu lagi og einnig án forráðamanna vegna sóttvarnarreglna.  Þau verða kl. 9:30 fyrir nemendur í 1.-4.bekk, kl. 10:30 fyrir nemendur í 5.-7. bekk og kl. 11:30 fyrir nemendur í 8.-9. bekk.

Vorhátíð foreldrafélagsins verður ekki að þessu sinni.

Sjá nánar vorskipulagið hér.

Nánar um vorferðir hér

Posted in Fréttaflokkur.