Benný Sif las upp úr bók sinni  

Í dag fengu nemendur í 3. – 4. bekk  rithöfund í heimsókn. Það var hún Benný Sif Ísleifsdóttir sem las upp úr nýútkominni bók sinni; Álfarannsóknin. Benný sem er þjóðfræðingur að mennt sagði frá hugmyndinni að bókinni sem gerist að hluta til í Kópavogi.

Álfarannsóknin er sjálfstætt framhald af  Jólasveinarannsókninni sem kom út fyrir síðustu jól.

Posted in Fréttaflokkur.