Rithöfundur í heimsókn

Í dag heimsótti rithöfundurinn Árni Árnason nemendur í 3. – 7. bekk.   Hann las upp úr bók sinni Friðbergur forseti sem kom út nýlega og er hans fyrsta bók.

Í kynningu á bókinni stendur: Friðbergur forseti er fyndin, hugljúf saga um kraftmikla krakka sem þora að hafa hátt og berjast gegn ranglæti – og fyrir betra samfélagi.

Nemendur höfðu gagn og gaman af upplestrinum.

Í Lindaskóla er lögð áhersla á að nemendur lesi bækur sér til ánægju.  Einn liður í því er að fá rithöfunda í heimsóknir sem vonandi eykur áhuga nemenda á lestri bóka.

Posted in Fréttaflokkur.